odddrún-heiða-edda :)

London baby

31.10.2006 09:18:24 / Guffa

Er þetta málið :D

Ég veit ekki...

endurvekja þessa síðu ?

Við (Heiða, Edda og ég ) erum semsagt að fara til london víst í mars með sálfræðinni....


spurning um að virkja þessa síðu e-h ? hvað fynst ykkur ?


Kv Oddrún

» 9 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 21:02:26 / Guffa

Jæja gott fólk!!!

jæja það er nú búið að vera mikið bloggleysi hér þar sem að Strumpafélagarnir eru búnir að finna sér aðra síðu og svoleiðis..

En nú eru allir væntanlega í prófum eða búnir í prófum og ég vil óska þeim til hamingju með það að vera búnir og vil óska þeim góðs gengis þeim sem eru enn í prófum.. sjálf á ég 2 próf eftir.:)

Það er maí og Auður Hreiðarsdóttir fer að eiga afmæli og svo er að fara að koma að júróvísjon skelli á og margt fleira í gangi sumir að útskrifast og svona og sumir að gera það gott í handboltanum og margt fleira... sumir hættir saman og bara allt í gangi..

Það fer að koma að bústað ef Palli er búinn að panta og svo var léleg comment á seinustu blogg færslu.. :)

Kveðja frá Eddu hér :p


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 08:28:44 / Guffa

er bloggar málið ??

Jæja, blog.central.is er að fara á hausinn :P eða kanski ekki, hverju sem því líður erum við heiða litla búnar að færa okkur svona hálfpartinn yfir á bloggar.is


 heiða - www.silent.bloggar.is

oddrún - www.oddrun.bloggar.is





» 1 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 20:33:15 / Guffa

Íkea

Ókey, ég viðurkenni að það var jú ég sem bloggaði síðast og ég held að það hafi verið í gær :P vá ég hef ekki verið svona virk í þessu í fleiri fleiri mánuði :P

Hvernig líður annars öllu þessu fólki sem einusinni hittist 1 sinni í viku oftast fyrir utan það að drekka á laugadögum ?

hver man ekki eftir lostkvöldum hjá hjalta ?

eða pointlausu vídjóglápi hjá Björgvini ?

Eða Brjáluðum heiðmerkurferðum í svarta myrkir ?

Talandi um það hvað varð um að allir hittust saman og sátu í e-h svakalegu partýi langt fram á nótt með tilheyrandi drykkju og ólátum ?? Núna fara allir bara niður í bæ og e-h, kanski er ég e-h klikkuð en það var aldrei svona snemma einsog núna:P

Hnja I miss u Gæs !!

en allaveganna þá er lífið undarlegt og þar sem ég var í Hægðum mínum (mwhahaha asnalegt orðasamband varð að nota það) að láta hestinn minn hlaupa af sér spikið, ég var í klædd risastórum snjóbuxum sem ég fann upp í hesthúsi og í 4-5 peysum til að verða ekki kalt. Þar réðst á mig BRJÁlaður ljósmyndari frá e-h morgunblaði/blaði/fréttablaði og byrjaði að taka myndir af mér.... og eg bara UUUU ??? eins úldin og hægt er með horið í nefinu stein skelkuð á þessari árás.... maðurinn spurði mig nafns og aldurs og sömu upplýsingar um hestin og hélt svo á braut.... Vá hvað ég vona að þetta byrtist ekki :S

ég er að hlust á mússíktilraunir á netinu, ég skyl ekki upp né niður í þessu... ef þetta er framtíð Íslands í tónlistargeiranum þá ætla ég að fara og kaupa mér eyrnartappa... ég hef ekki enþá heyrt neina rödd né neinn texta í lagi :P

ég ætla að enda þetta með mögnuðu myndbandi :P

http://www.squizzle.com/movieview.asp?id=561

Kv. Oddrún


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 10:31:01 / Guffa

Botninum náð ??


Jeddúda, ég sit heima hjá mér veik...
Ég get ekki ýmindað mér neitt verra ég þoli ekki að vera veik :^)
ég lagðist fyrir framan Tvið og viti menn, það er spænsk sápuópera !!!!  ;)
ég held að Botninum sé náð í íslenskri sjónvarpsdagskrá....:P


Annars eru Palli og Ómar að fara að syngja í sögnvakeppni borgó í Smáralind í kvöld ;) örugglega einstök skemmtun :D


Oddrún Lasarus


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 01:30:53 / Guffa

GÚFFÍNA

 HELGIN já helgin.. hún var nokkuð góð.. ætti ég að segja ykkur frá henni ?? jájá ég geri það bara :D

föstudagur!!!!
fór út að borða með Auði, Möggu og Oddrúnu á Pizza hut eftir æfingu og svo heim til auðar í smá videogláp.. en svo hringdi frænka min í mig og dregur mig með sér í eitthvað bekkjarpartý, það var frekar fyndið :lol: svo kikti ég stutt stopp til Ingvars sem var svosum ágætt ;)

og svo hringdi frændi minn í mig.. hann hafði lent í smá slag við eitthvern dyravörð, alger sauður.. svo ég náði í hann og við fórum að hitta frænku mina og skutluðum henni og 3 vinkonum hennar í bæinn.. þær voru 4 frekar stórar konur aftur í litla bílnum minum.. það var ótrúlega fyndið :haha:
svo skutlaði ég frænda minum bara heim til sín og vinir hans voru í bil við hliðiná okkur og við vorum að tala saman með gluggana skrúfaða niður alla leiðina í mosó..  frekar fyndið.. svo hurfu þeir bara
svo þegar við vorum komin fyrir utan hjá frænda og ég var að fara aftur heim.. þá hlaupa allt í einu eitthverjir strákar og opna bílinn og hoppa allir inn og mér brá svo mikið að ég öskraði og ég bara næstum .. þá voru þetta vinir frænda mins.. rosalega fyndnir eitthvað :lol:

Laugardagur!!
Get nú alls ekki sagt að Laugardagurinn hafi verið leiðilegur.. ég og Erna fórum í rimaskóla að leika okkur smá í körfu og svo sendi Erla mér sms um að hún væri að fá sér ís í Brynjuís.. BJÁNI.. og þá langaði mig svo óendanlega mikið í ís.. svo við Erna fórum og skelltum okkur í sund og fengum okkur ís á eftir :)

svo spurði Hulda mig hvort ég vildi koma með henni að hitta Ingimar og Andra og fara með þeim í eitthvað Partý.. að sjálfsögðu var ég til í það.. við fórum í partý til Bents.. ég, Hulda, Ingimar og Andri fórum bara upp að dansa og það var eitthver stelpa sem kom og sagði að við mættum ekki hoppa svona því loftið gæti dottið HAHA.. við héldum bara áfram að dansa og hoppa.. aldrei datt loftið.. held bara að ef ég, Hulda, Ingimar og Andri hefðum ekki verið þarna hefði þetta verið frekar dautt partý.. En svo dó partýhaldarinn :lol: slappur gæi..!! svo ég skutlaði bara Ingimar og Andra heim og við Hulda fórum á Subway..

 
og þegar við vorum á leiðinni heim hringdi Arnar í mig og við fórum og hittum hann, Kristján, Júlla og Hjört.. við héldum smá partý í bílnum mínum.. haha.. steikt.. en svo att bú.. og við Hulda á leið heim.. en svo hringir Kristján og segir okkur að koma í smá chillpartý og við förum til þeirra en stutt stopp og svo heim..
 

Heiða - Ingimar æðibiti - Helga bunny bunny

fleiri myndir frá laugard.--> http://blog.central.is/rimmel?page=viewPage&id=707516 

Þessi helgi var alveg frábær í alla staði.. alveg rosa rosa ýkt mikið fjör.. nú er þetta orðið svoldið langt þannig ég ætla að hætta þessu..!! Bæjjjjjj..!!

Kv. Heiða


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 23:02:16 / Guffa

Hæ sæti


Hvað get ég sagt.??

Nú er ég svoldið sorgmædd, í gær var síðasta æfingin með honum Nem okkar, við fórum í fótbolta og djö.. rústuðum við honum, hann ætti bara að halda sig við körfuna strákurinn :lol: en nú er hann af landi brott og við sjáum hann kannski aftur í ágúst en kannski ekki.. en vonandi.. he is such a funny guy..!! :D
en hver ætli komi að þjálfa okkur þá núna ?? það er spurning sem enginn getur svarað.. vonandi eitthver skemmtilegur :)

Nem alveg klikkaður í eitthverjum körfuboltaleik.. rosalega smart hopp eitthvað .. haha

  • ég er sko ekki að meika það í skólanum þessa dagana.. alveg hætt að nenna að vera í skólanum og hætt að nenna að læra.. hlakka svo til að komast í frí..
  • ég er með alveg hrikalegar harðsperrur í fótunum ég á í erfiðleikum með að labba stigana í skólanum.
  • svo var Gettu betur áðan .. ég fór með henni Erlu  :) og svo hitti ég náttúrulega eitthvað af liði þarna niðurfrá.. töpuðm þokkalega.

en ekki er ég bara sorgmædd þessa vikuna ég er alveg ósorgmædd líka.. :haha:

ég fór í kolaportið um daginn en það er ekki frásögu færandi nema það sko að ég hitti enga aðra en hana systur mína.. hafði ekki séð hana í c.a. 2 ár og við spjölluðum saman þarna og ég bara komst að því að hún á heima hérna í næstu götu bara.. sem er geggjað mikið kúl.. :haha:

svo í dag fórum við mamma í bæinn og keyptum okkur boxer nærbrækur og vá við erum svo smartar saman á boxernum.. svo fengum við okkur einnig pulsu í bænum og hún var svosum ágæt =) það var ógó gaman hjá okkur.!!

nú ætla ég að hætta að úthella hjarta mínu á þessa annars ágætu síðu í bili :)

en þar til næst þá segi ég bara ...

Bæ Dúlla..!! :*:*:*

p.s ég elska körfubolta :D                                                                         

   Kv.Heiða 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 14:48:49 / Guffa

ODDRÚN

ég þjáist af ritstíbblu, þannig að stutt upptalning er við hæfi !!

  • Herdís afmæli
  • Jarðaberjabolla og fullt af bjór
  • Helgi að strippa
  • Hjalti notaði allan plásturinn í Kórónu
  • Heiða og Ívar meiða sig, en enginn plástur
  • Enginn klósettpappír.....
  • Ómar + Helgi + Tónlist = ABBA
  • Páll edrú
  • Jói dansa Já, í bleikri skyrtu
  •  Sumir gráta
  • Hverfis dansa, nema röðin var of löng....
  • 11ann(ellefann) -  hresst fólk
  • Sólon, körfuboltafólk - og gummi Lollípop (neitaði að tala við okkur)/var kenndur við konu
  • Veit ekki, sumir græddu mikið á kveldinu :D aðrir töpuðu mikið ;P

over and át

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 09:34:49 / mínamús

Edda með eitt blogg hér..!!

Jæja ég ákvað að skella einu bloggi hérna inn því það er svo langt síðan ég hef bloggað hérna.. En ég er hér í stæ 313 og er búin að gera verkefnið svo ég er bara að vafra um á netsíðum en ég rakst hérna á eina mynd af 69.is og langaði að leyfa ykkur að joina..

Vá hver væri ekki til í að hafa þetta í staðinn fyrir þessa litlu nauthólmsvík okkar.. Ef það er gott veður þá opnar maður en ef það er komið vont veður þá lokar maður bara aftur ... :p

En partýið hjá Halla og Ingvari voru mjög skemmtileg... Gítarspilið hjá Guðmanni og Söngurinn hjá öllum hinum með var rosa gaman og svo var stuð hjá Ingvari og þar var spilað all mikið af silvíu nótt laginu og svo líka Bananafolks nananna :D hehe en ég skemmti mér vel en það voru víst frekar margir sem fóru bara senmma heim og svo eru einhverjir að fara til Stykkishólmar að djamma þar þar sem heitt elskaða Rebekka hans Ægis er að verða 17 ára og að fá bílpróf en ég kemst því miður ekki þar sem ég verð á landsliðsæfingum sömu helgi..! Það voru einnig nokkuð margir sem voru í búning og það var mjög gaman og hitti þar frænku mína hana Helgu Katrínu sem er mjög skemmtilegt.. :)

Kveð í bili Edda María :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 20:52:49 / Guffa

Stelpurnar á Árshátíð í Húsaskóla

HAHA.. þetta er of fyndin mynd..

 hér er líka eitt stykki of gott myndband: http://www.satfiles.net/allskonar/KetchupEffect.wmv


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 09:21:14 / Guffa

HNJA HJNA

Vá róleg helgi, í fyrsta skipti í mjög langan tíma :D
ég (oddrún) skellti mér á föstudaginn og keypti mér bíl ;)  Um kveldið fór ég til  Báru og  Erlu í heljarinnar  pizzupartý, þar sem við spiluðum einsog það væri enginn morgundagur ;)

bisImageServer_aspx 


Á laugardaginn var ég að keyra heim á fína bílnum með græjurnar í botni, þegar undarlegt hljóð heyrðist, viti menn það var komið gat á púströrið.... spes  en allaveganna þá er þetta greinilega harður heimur ;P svo var ég að snúast í kringum mína stóru systur sem fékk heiðurinn af því að vera fyrsti nemandi Háskóla Íslands sem útkrifast úr listfræði með ítölsku sem hliðargrein... hnja hnja... um kvöldið var svo svakaleg útskriftar veisla hjeme hos mig, en ekki leið á lögnu fyrr en mér var farið að finnast ég of lítil í þetta... Allt krakkar 25 ára og yfir :S Þannig ég og heiða og brynhildur mættumst heima hjá auði og horfðum á tvær ræmur :P
OHHH það er bollu dagur og ég er ekki búin að fá neina bollu, þetta getur ekki vitað á gott..... en það verður að hafa það, maður fær sér bara í kaffinu eða e-h :P


EIGIÐ GÓÐA "hátíðaviku" og ekki borða of mikið af bollum, saltkjöti eða of mikið nammi á öskudaginn.....

ps. hey hugmynd, hvað segir fólkið um að fara og syngja í búðum á öskudaginn ??  er það ekki frekar sterkur leikur ??  :P

oddrún kveður


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 10:37:11 / Guffa

Ef ég myndi nú bara breytast í jarðaber..!!!

Helgin var alveg stórkostleg..

ég fór með stelpunum í bústað, það var rosalega gaman og það koma kannski myndir frá mér innan skamms en annars er hægt að finna eitthverjar myndir á síðunni hennar Alexöndu kjútípæ...   --> BÚSTAÐARFERÐ....:D

Bústaður:

  • heitur pottur
  • dansa upp á borði
  • votta jéhóvar
  • klikkað fólk í næsta bústað
  • drekka já
  • sund í borganesi
  • horft mikið á sex
  • friðarkyndill
  • sprungin pera á klósettinu
  • silvía nótt
  • og svo var það margt fleira..

við lögðum svo af stað heim úr bústað snemma á sunnudagsmorguninn og ég mætti hress og kát í skírn hjá litla frænda.. fullt af kökum og læti..

núna er ég bara í ensku og fór allt í einu að hugsa hvernig ég liti út ef ég væri jarðaber.. og teiknaði mynd af því.. það eru nefnilega allir að segja að ég fari örugglega bráðum að breytast í jarðaber.. ég borða svo mikið ad jaraðberja eitthvað..!!! 

ég sem jarðaber:

kv.Heiða


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 19:10:51 / Guffa

Fréttablaðið 11.feb..

í morgun fékk ég þær fréttir í sms-i að það væri eitthvað sniðugt á bls. 30 í fréttablaðinu.. viti menn.. það var svoldið sniðugt þar..

*Hérna sjáiði sniðugt...!!!*

..Þetta er gott..

langaði bara að deila þessu með ykkur. haha.. bæ


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 23:50:55 / Guffa

Better Late then never ;D

SILVÍA NÓTT, hvar á ég að byrja.....

 The image “http://www.oikotimes.com/site/images/preselections/iceland_silvia_nott.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.   

Jæja, ég sá einn þátt í haust eða e-h, guð minn góður... ég stökk upp úr sófanum og dreif mig að skipta um stöð, ég gaf mér ekki einusinni tíma í að leita að fjarstíringunni :S svo lengi á eftir velti ég því fyrir mér hvort þessi persóna væri leikin eða bara svona virkilega hallærisleg, en gaf mér eingan tíma í að tjékka á henni aftur, hún var of vonlaus í fyrsta skiptið.

Ég fékk samt jólakort frá henni :P kanski fá þeir bara svoleiðis sem fýla hana ekki, svipað og stjórnmálamenn gera.....

allaveganna þá plöggaði ég þessu ekki til að durlla yfri hana, eftir að ég gerði mér virkilega grein fyrir því að hún var að djóka þá fór ég að hlæja mig máttlausa af henni, þangað til var ég virkilega pirruð :P

LaugardagsKvöldið mitt hefði ekki getað byrjað betur, en með þessu magnaða framlagi hennar til EVRÓVISION :D ( ef þú sást það ekki er það hér : http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4275214/3 ;)

svo Sá ég kærur á mánudaginn, shit hvað ísland er tíbískt, loksins þegar við eigum sjens í að koma með gott lag þá bara BANG og þeir ætla að klippa það út, allt af því að gaurinn var svo hræddur um að hann ætti ekki möguleika á því að vinna þetta lag :P En sem betur fer þá redduðu e-h dómsnefnd þessu og hún tekur þátt :P

allaveganna til að halda áfram með laugardagskvöldið þá var það MAGNAÐ, ívar einn heima og þessi endless however fun drykkjuleikur ávalt við lýð :P Svo fórum við niður í bæ í boði Björgvins og Ómars dansaði af mér allan Majikinn sem ég drakk og fór svo heim aftur í boði sömu einstaklinga :P ávalt gaman að vera með ykkur fólki þangað til næst :*

Oddrún


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Myndasöfn